Kaupsamningur og afsal fyrir skráningarskylt ökutæki

Áður en sala á sér stað á  notuðu skráningarskyldu ökutæki er ráðlegt að láta fagaðila ástandsskoða ökutækið og fá ástandsskýrslu. Nauðsynlegt er að afla veðbókarvottorðs og ferilskrár umrædds ökutækis auk stöðu opinbera gjalda og stöðu gagnvart tryggingafélagi, þar sem bæði ríkissjóður og tryggingafélag hafa heimild til að gera lögtak í ökutækinu fyrir vangreiddum gjöldum og tryggingum.

Ítarlegar upplýsingar um hjólið þurfa að vera tiltækar s.s. um km stöðu, árgerð og fyrsta skráningardag ökutækis og hvaða búnaður fylgi, svo koma megi í veg fyrir ágreining á síðari stigum. Ferilskrá fæst hjá Samgöngustofu og veðbókarvottorð hjá sýslumanni. Fá þarf í viðkomandi tryggingafélag stöðu trygginga og síðan þarf að tilkynna inn nýjan eiganda*. Einnig þarf að afla gagna um stöðu opnberra gjalda.

Seljanda ber að sjá til þess að öll skjöl og opinber gögn liggi fyrir við kaupsamning. Kaupanda ber að ganga úr skugga um ástand ökutækisins m.a. með því að afla sér ástandsskýrslu. Farist það fyrir þá getur það leitt til þess að kaupandi geti ekki borið fyrir sig galla á síðari stigum komi slíkt fram.  

 Almennar ráðleggingar eru að ganga ekki frá kaupum á notuðu ökutæki um helgar án þess að nýtt veðbókarvottorð sé til staðar, dags. sama dag og kaupsamningur og afsal er gert.

Bæta á óskalista
Includes 0% tax
Gerð skjals ,
Efnisorð ,
Forskoðun
Dagsetning útgáfu
10 Svör

Lokað er fyrir athugasemdir.