Erfðaskrá einstæðings

Einstaklingur án maka eða niðja, skv. 35.gr. erfðalaga nr. 8/1962, með vottun lögbókanda.

Einföld erfðaskrá þar sem einn arfleifandi arfleiðir einn eða fleiri aðila að öllum eignum sínum hverju nafni sem þær kunna að nefnast. Erfðaskrá þessi gerir ráð fyrir að arfleifandi sé hvorki í hjúskap, né eigi afkomendur eða skylduerfingja. Einu erfingjar hans eru lögerfingjar sem eru annaðhvort foreldrar, systkini eða systkinabörn. Í þeim tilvikum hefur arfleifandi heimild til að ráðstafa að vild öllum eigum sínum til bréferfingja sinna á grundvelli 35.gr. erfðalaga nr. 8/1962. Eigi arfleifandi hvorki lögerfingja né skylduerfingja þá rennur arfur eftir hann þ.e.a.s. allar eigur arfláta til ríkisins. Í þeim tilvikum er nauðsynlegt að gera erfðaskrá þar sem bréferfingi eða bréferfingjar erfa viðkomandi.

Erfðaskrá er formbundinn gjörningur sem skal vera skriflegur og vottaður í samræmi við lög. Ef meinbugir eru á vottun eða formi erfðaskrár getur það leitt til ógildingar hennar.

Það verður að votta erfðaskrána með þar til bærum, tveimur, arfleiðsluvottum sem kallaðir eru til að staðfesta vilja, hæfi og andlega getu arfleifanda, þeir mega hafa hagsmuni eða fjölskyldutengsl við arfláta. Öruggast er að fá vottun lögbókanda í heimilisvarnarþinghá viðkomandi arfleifanda, sem skráir og varðveitir staðfest eintak. Lögbókandi (Notarius publicus) er sýslumaður í viðkomandi umdæmi. Gjald er tekið fyrir vottun lögbókanda. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu er að Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi. Arfleifandi verður að sanna deili á sér með gildum persónuskilrikjum svo sem vegabréfi og má ekki vera beittur þvingunum við að koma til lögbókanda.

Bæta á óskalista
Includes 0% tax
Gerð skjals , ,
Efnisorð ,
Forskoðun
Dagsetning útgáfu