Samningur sambúðarfólks við upphaf sambúðar

með kaupum á sameiginlegri fasteign, yfirlýsingu um gerð erfðaskrár með gagnkvæmum erfðarétti, reglum um sameiginlegan rekstrarkostnað og reglum um uppgjör vegna sambúðarslita

Í daglegu tali manna á milli virðist lítill greinarmunur gerður á sambúð, óvígðri sambúð og hjúskap og virðast sumir telja að sambúðarformið skipti ekki máli. Raunin er hins vegar þveröfug og á þessum sambúðarformum er mikill munur réttindalega séð.

Hér á landi eru ekki til nein heildarlög sem taka á reglum um sambúð og óvígða sambúð en um hjúskap gilda hjúskapalög nr. 31/1998, með síðari breytingum. Ýmis sérlög kveða síðan á um réttindi sem varða óvígða sambúð og þá aðallega þegar kemur að félagslegum réttindum og skyldum einstaklinga. Í grunninn má segja að réttarumgjörð sambúðar án skráningar sé veikust á  meðan óvígð sambúð sem er skráð hjá sýslumanni veitir ýmis félagsleg réttindi og skyldur sem væru annars ekki til staðar. Í hjúskap er kveðið á um réttindi hjúskaparaðila, m.a. um erfðarétt, gagnkvæma framfærsluskyldu, eignaskipulag, hjúskapareignir og fjárhagsmálefni að öðru leyti. Sambúð og óvígð sambúð veita hvorki sameiginlega framfærsluskyldu, erfðarétt, rétt til hjúskapareigna eða annars slíks.

Aðilar í skráðri óvígðri sambúð geta átt félagsleg réttindi sem sambúðaraðilar í óskráðri sambúð eiga ekki, sbr. t.d. 49. gr. almannatryggingalaga nr. 100/2007, með síðari breytingum, þar sem kveðið er á um að aðilar í óvígðri sambúð hafi sama rétt til bóta og fólk í hjónabandi, ef sambúðin hefur verið skráð í Þjóðskrá lengur en í eitt ár. Sama rétt eiga þau ef þau eiga barn saman eða ef þau eiga von á barni saman, enda sé óvígð sambúð þeirra skráð í þjóðskrá. Réttur til makalífeyris skv. 16. gr. lífeyrissjóðslaga nr. 129/1997, með síðari breytingum, nær bæði til aðila í hjónabandi og óvígðri sambúð. Hið sama á við varðandi reglur skaðabótaréttarins sem horfa jafnt við aðilum í hjónabandi og í óvígðri, skráðri sambúð. Þegar aðili á rétt á skaðabótum vegna fráfalls sambúðaraðila þá skiptir ekki máli hvort um hjúskap eða óvígða skráða sambúð er að ræða. Hér er um að ræða dæmi um réttindi sem falla til aðila í hjúskap sem og þeirra sem eru skráð í óvígða sambúð, samkvæmt skilyrðum þar um, þ.e.a.s. eiga barn saman, vera með sama lögheimili og hafa haldið sameiginlegt heimili lengur en í 12 mánuði.

Hins vegar háttar svo til að ekki er til staðar framfærsluskylda og fjárhagur er ekki sameiginlegur milli  sambúðaraðila og gildir það bæði um sambúðarfólk og fólk í skráðri óvígðri sambúð.

Í tilviki þar sem um sambúð er að ræða þá skal í upphafi endinn skoða og mikilvægt er að setja saman ramma um réttarstöðu sambúðaraðila. Eins og staðan er í dag er eina leiðin til að gera slíkt sú að aðilar geri með sér sambúðarsamning. Í þeim samningi er kveðið á um ýmis atriði sem mikilvægt er að sambúðarfólk skoði strax í upphafi svo hægt verði að forðast á síðari stigum ágreining og auka tilfinningaröskun komi til sambúðarslita eða fráfalls. Í sambúðarsamningi þarf t.d. að kveða á um það hvernig eigi að fara með kaup á sameiginlegri fasteign, hvernig á reka hana, hvernig reikna eigi eignarhluta sambúðarfólks með tilliti til þess hvað þeir leggja til kaupanna, hvernig eigi að fara með börn sambúðaraðila  sem eiga einnig aðra forsjáraðila á lífi. Þá er gott að  hafa í samningnum yfirlýsingu um að aðilar geri með sér gagnkvæma erfðaskrá, hvernig fara eigi með sameiginlegt innbú, svo fáein dæmi séu nefnd.

Í raun er ávallt gott að skoða hvort ekki sé hagkvæmt, sér í lagi þegar sameiginleg börn eru til staðar, að íhuga af alvöru að ganga í hjúskap, til að mynda með því að biðja sýslumann um slíka vígslu. Hjúskapur veitir aðilum bestu réttarstöðu sem þeir geta notið í samlífi sínu.

Í þessum sambúðarsamningi er gengið út frá því að sambúðaraðilar ætli að skrá sig í óvígða sambúð að uppfylltum lagaskilyrðum. Hér er einnig kveðið á um að aðilar ætli að gera með sér gagnkvæma erfðaskrá til að bæta réttarstöðu sína og muni skrá sig í óvígða sambúð innan 24 mánaða frá dagsetningu sambúðarsamningsins, til að tryggja réttarstöðu frekar. Sambúðarsamningur þessi tekur á því að í upphafi sé keypt fasteign og hvernig hún er fjármögnuð og hvernig eignamyndun aðila verður í fasteigninni, einnig við sambúðarslit hafi annar aðili sannanlega greitt meira en hinn. Sambúðarsamningur þessi gerir ráð fyrir að innbú verði fjármagnað sameiginlega og verði því skipt til helminga, hér er átt við búsmuni vegna heimilisins, ekki vegna vinnu, áhugamála eða annars slíks, heldur eingöngu það sem er inná heimilinu, í stofu, eldhúsi, svefnherbergi, baði og í þvottaherbergi og út í garði eða palli.

Nauðsynlegt er að geyma eintak af sambúðarsamningnum á öruggum og tryggum stað og láta þriðja aðila geyma eintak af samningnum. Ráðlegt er að geyma samning þennan, ásamt öðrum mikilvægum skjölum í bankahólfi.

Tengd skjöl:

Bæta á óskalista
Includes 0% tax
Gerð skjals ,
Efnisorð , ,
Forskoðun
Dagsetning útgáfu