sign pen business document

Uppsögn á leigusamningi

Hafi verið gerður ótímabundin húsaleigusamningur milli leigusala og leigutaka og óski annar aðilinn eftir því að segja leigunni upp á grundvelli húsaleigusamnings milli aðila sbr. ákvæði XI. kafla laga húsaleigulaga nr. 36/1994, með síðari breytingum, einkum og sér 55.gr., sbr. 56.gr.  laganna, þá ber honum að senda skriflega uppsögn með sannanlegum hætti. Uppsögn verður að berast fyrir mánaðarmót þar sem uppsagnarfrestur byrjar frá og með næstu mánaðarmótum eftir að uppsögn barst til vitakanda.

Tímabundnir samningar

Tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar af hálfu aðila. Þó eru undantekningar við sérstakar aðstæður sem finna má í 58. gr. XI kafla húsaleigulaga.

Íbúðarhúsnæði, herbergi og geymslur

Samkvæmt 56. gr. laga nr. 36/1994, um húsaleigu, með síðari breytingum, þá er uppsagnarfrestur á einstökum herbergjum 3 mánuðir, á geymsluskúrum og bílskúrum 1 mánuður og 3 – 6 mánuðir á íbúðarhúsnæði, eftir aðstæðum.

Atvinnuhúsnæði

Ef um er að ræða atvinnuhúsnæði þá er uppsagnarfresturinn eftirfarandi,  sex mánuði  af beggja hálfu á atvinnuhúsnæði fyrstu fimm ár leigutímans, níu mánuðir næstu fimm ár og síðan eitt ár eftir tíu ára leigutíma.frá og með þeim mánaðarmótum sem upphaf uppsagnarfrest hefst.

Gott er ef sá aðili sem segir upp samningum getur komið uppsögninni til viðtakanda persónulega og fengið viðkomandi til að kvitta fyrir móttöku á uppsögninni. Uppsögnin er þá í tvíriti eitt til varðveislu fyrir hvorn aðila. Sé þessu ekki viðkomið þá þarf að senda uppsögnina með sannanlegum hætti, s.s. með stefnuvotti, birtingu póstsins eða skráðu ábyrgðarbréfi hjá póstinum. Mögulegt er að senda tölvupóst ef viðtakandi sendir svar þar sem móttaka póstsins og efnis er staðfest. T.d. með texta sambærilegum þeim sem er í móttökukvittun uppsagnarinnar. Eða með mynd af undirritaðri uppsögn.

Mælt er með því að úttekt sé gerð á leiguhúsnæði bæði við upphaf og lok leigunnar m.t.t. endurgreiðslu tryggingafjár.

Tegnd skjöl

Form fyrir úttektir má finna hér á síðunni.

Bæta á óskalista
Includes 0% tax
Gerð skjals ,
Efnisorð , ,
Forskoðun
Dagsetning útgáfu